Á ferð og flugi um heimskringluna
11.02.2007 11:54:37 / champinn

RÚV á laugardagskvöldum, þorrablót + partý

Góðan dag allt fólk nær og fjær
Jæja, margt hefur gerst undanfarnar vikur og kominn tími til að segja frá einhverju af þessum viðburðum.
Um daginn lenti ég í því að Lilja fór í partý sem ég mátti ekki mæta í, allt hið besta mál og kvöldið leið.  Ég rúntaði bara um bæjinn um kvöldið og var bara í fínum gír, en uppgötvaði svo mér til mikillar undrunar að ég var ég búinn að vera í ca. 1,5 klst að hlusta einungis á RÚV allan tímann!!!  Já, gamla gufan bara tekin í stemmningu á laugardagskvöldi, það er gamaldags!!!  Nú þegar þrítugsafmælið er að nálgast nú í apríl, þá höfum við strákarnir gert grín að því að niðurtalning fólks í árum talið hæfist þá, þetta finnst mér því vera hálfgert þjófstart!!!  Reyndar verð ég að segja að RÚV er bara massa fín stöð!

Jæja í annað, hér í T23 var haldið massivt þorrablót um síðustu helgi, mættu allir kaffibrúsakarlarnir og kaffivagnastrákarnir og átu svið, sviðasultu, hrútspunga og að sjálfsögðu hangiket af bestu lyst.  Var það svo að þetta heppnaðist gríðarlega vel og verður árviss viðburður héðan í frá (best að finna hver heldur þetta næst ;)

Ekki er hægt að komast hjá því að tala aðeins um Icelandair námskeiðið.  Þar sem við erum nú búin að klára öll helstu prófin og námskeiðið farið að bera smá vott af því að frekar rólegt sé á næstunni, var það svo að gærdagurinn var frídagur, þ.a.l. ákváðum við að koma hingað í T23 og halda smá hitting fyrir námskeiðsmeðlimi.  Úr var massa fínt partý með öllu tilheyrandi, endaði maður niðiur í bæ til ca. 5 um morguninn í massa öflugri stemmningu þar sem allir ísl. Bláfuglsmenn voru einnig á REX í fínni stemmningu.  Gott fjör, massa gaman.  Það heyrðist reyndar eitthvað smá væl úr Kópavoginum um að hann fengi ekki að mæta, en svona er nú að vinna hjá Meirihlutanum ;)

Í dag er svo massa stemmning eða þannig, hið svokallaða "wet drill" er í dag, já, farið í sundlaugina í Mosó (eftir lokun!!!) og hoppað upp í björgunarbáta og svamlað eitthvað í líkingu við það sem á að vera í raunveruleikanum, þetta hef ég gert einu sinni áður og það er enn í minningunni hvað það var erftit að hífa sig upp í bátum í fötum, það er ekkert grín, þ.a.l. verða menn væntanlega með harðsperur á morgun og vonandi heilir eftir allt puðið.

Að lokkum lýsi ég yfir ánægju minni með Birki og félaga, þeir standa sig vel þarna í Latnesku Ameríku, auk þess sem Birkir ákvað að halda í gamla bloggið sem er mikill munur!
Kveðja til ykkar í Argentínu strákar, og svo auðvitað alla hinna sem eru á línunni eða annars staðar!

l8er




» 8 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 13:30:33 / champinn

Vangaveltur og hugskot auk heimferðar

Mörgu getur maður velt fyrir sér meðan maður hefur nákvæmlega ekkert að gera hér í Jeddah, t.d. er ljóst að Saudi-Arabar binda ekki bagga sína sömu hnútum og aðrir, með því eru þeir að binda sér bagga, þar af leiðandi hlaupa vestrænar þjóðir ekki undir bagga með Saudi-Aröbum að ráði, enda bera Saudarnir ekki vitið í böggum og ekki get ég pissað mikið meir í bagga þeirra því í kvöld er ég að fara í síðasta flugið mitt fyrir þá , jibbí!!! ;) Svo fór ég að spá í það hvort að þeir gestir sem koma hingað á þessa síðu eigi að vera kallaðir vefgestir ? Margt vitlausara, þannig getur maður sagt þegar þessi orð eru skrifuð að 360 vefgestir hafa kíkt á þessa litlu síðu mina., Magnað!
Nú, kem ég betur að þessu með síðasta flugið mitt, er að fljúga til Batham í kvöld (réttara sagt í nótt), og kem þaðan hingað aftur seint þ. 12. svo er heimferðin annað hvort þ. 13. Eða 14. þannig að Atlanta fær ekki mikið meira blóð úr kúnni af minni hálfu í bili ;)
Jájá, í lokin verð ég hreinlega að skella einni limru hérna handa þeim sem halda með Arsenal þar sem ég er svo stoltur af þessari smíð minni ;)

Vont er það og skrýtið val,
að velja og halda með Arsenal,
mér þykir það leitt,
þeir get-ekki neitt,
en Spurs er það sem koma skal!!!!!!



» 6 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 21:49:20 / champinn

Gleðilegt ár!!!

Gleðilegt ár!!! Smá upprifjun á árinu Það er ekki laust við að maður brosi út í annað þessa dagana er maður hugsar til þeirra skemmtilegu atburða sem áttu sér stað á árinu 2006. Síðasta ár gat ekki byrjað betur strax í byrjun janúar þegar ég og Lilja ásamt fjölskyldu minni fórum til London til að vera viðstödd útskrift bróður míns frá King´s College í London, já, Gísli bróðir minn orðinn massa öflugur meistari í lögfræði. London átti hug okkar allan þann tíma og var þetta stórskemmtileg byrjun á árinu. Vinnan var ávalt á sínum stað á 3ja vikna fresti allt árið en tíminn sem gafst heima fyrir var oft nýttur til að skella sér í sumarbústaðinn og svo var golfið auðvitað alltaf á sínum stað. Svo gerðist stóra bomban í júlí þegar við festum kaup á nýrri íbúð í Grafarvoginum, allt sem ég og Lilja báðum um var nánast staðsett þarna í Tröllaborgunum þannig að draumahúsnæðið var komið til okkar og fórum við í það, enda líður okkur mjög vel þar og viljum hvergi annars staðar vera. Rétt þegar við vorum búin að leggja lokahönd á íbúðina, þ.e. búin að flytja allt, skipuleggja allt með nýjum og gömlum húsgögnum, þá gerðist allt í einu nú í lok ársins að ég tók að mér nýtt starf. Það virðist því sem árið 2006 hafi verið gríðarlega viðburðarríkt og greinilegt að það ár verður í minnum haft sem ár breytinga og frumkvæðis. Vona ég að 2007 verði engu síðra, og óska ég öllum gleðilegs og farsæls árs árið 2007 og megi friður ríkja um heim allan. Til kaffibrúsakarlanna Eins og alþjóð veit, eru til menn sem skipuleggja og meta framtíð vors lands. Þessi mál ásamt öðrum ekki síður mikilvægum eru tekin fyrir í hádeginu nokkrum sinnum í viku allt árið. Mikið er skrafað, hugsað og framkvæmt eftir því. Má segja að þessi litla ríkisstjórn landsins sem mætir á þingfundi á Tobbanum kl. 1200 nánast alla virka daga vikunnar stjórni hinu daglega lífi vestur á fróni, teknar eru miklar ákvarðanir í samgöngumálum Íslendinga enda margir hverjir í stjórninni viðriðnir hin öflugustu fyrirtæki landsins í ferðaiðnaðinum heima og á Ferðamálaráð Íslands margt að þakka þessum mönnum sem þarna eru á fundum. Svo er það kaffið, já, kaffið, þessi fyrirferðarlitli drykkur sem allir elska og geta pantað með svo litlum tilþrifum nema einn, einn stjórnarmaður nefnilega gerir allt vitlaust þarna með einum kaffibolla! En það er bara til að sýna mátt stjórnarinnar ;) Þessum mönnum öllum sem þarna mæta vil ég þakka kærlega fyrir árið sem nú er liðið og nú er bara að halda áfram og taka 2007 fagnandi sem mér skilst reyndar að flestir hafi gert heima hjá Mr. B.Ö.A sl. Nýársmorgun. Þótti mér afar slæmt að þurfa frá að hverfa þann sama morgun til Jeddah enn á ný, en það eru nú bara síðustu dagarnir mínir hjá AAI þannig vistin hér er ekki nærri eins slæm og hún gæti verið. Sjáumst næst þ. 15.01.07 Að lokum Að venju verður maður að tiltaka þá staði sem maður hefur komið til á síðasta ári, þeir voru margir, sumir fróðlegir, sumir hræðilegir, en sem betur fer margir mjög skemmtilegir, allir þessir staðir fá nýárskveðjur með von um að 2007 verði engu síðra en það 2006: Saudi-Arabía Jeddah, Madinah, Ryadh, Indónesia Surabaya, Batham Bangladesh Dhaka Þýskaland Frankfuhrt Hong Kong Sameinðu Arabísku Furstadæmin Dubai, Sharjah Holland Amsterdam Sviss Zurich Pakistan Lahore USA New York, Bangor, Atlanta, Houston, Chicago Azerbaijan Baku Malasía Kuala Lumpur Belgía Ostende, Antwerpen, Brussel Íran Izfahan, Teheran, Syraz Egyptaland Cairo Marokko Casablanca Kosovo (fyrrum Júgóslavía) Pristina (Kosovo) Spánn Barcelona

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 14:18:39 / champinn

Homeward Bound

Jæja, þá er maður staddur hér á London Heathrow í góðum gír enda á leiðinni heim! Já, það er ekki laust við það að það hlakki í manni, fyrstu jólin heima síðan 2002 og bara rífandi stemmning sem ríkir í manni og þvílík tilhlökkun að fá að vera með í þessari skemmtilegu stemmningu sem ríkir ávalt heima á þessum tíma. Það má segja að lagið sem titill þessa bloggs hefur, eigi vel við mann þessa stundina, Simon og Garfunkel hafa líklega spáð í okkur flugmennina þegar þeir sömdu þennan fína smell á sínum tíma. Því er víst ekki að leyna lengur að karlinum hefur nú boðist staða um að gerast flugmaður á B-757/767 hjá Flugleiðum. Hefur sú ákvörðun verið tekin að þiggja þessa stöðu sem segja má að sé draumi líkust fyrir mig. Námskeið hefst þ. 16. Jan og vonast ég til þess að þar verði massa stemmning og efast ég ekki um það. Konan er nú búin í prófunum og nú er ekkert að gera en að fara út í fjöll og horfa á karlinn gera sig að fífli í snjónum! Styttist í skíðaskemmtun, hvar svo sem á landinu hún verður! Það hlakkar í manni að hitta Tobbakaffigengið vonandi strax á morgun ;) Tvöfaldan latte takk, sódavatn, og smá Chicken curry ;) Tær snilld. Áskorun á alla í genginu að mæta í hádeginu á morgun! Kv. Frá Heathrow (kominn heim eftir 5 tíma!) Home Sweet Home!!!!!!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 14:02:20 / champinn

Jólastemmning í Jeddah og Surabaya

Selamat malaam Jæja gott fólk, það er nú ekkert venjulegt hvernig heimurinn er stundum, haldið þið að karlinn hafi ekki verið að snæða í rólegheitunum í mesta múslimaríki heims á miðjum degi, og allt í einu heyrt jólalagið "there´s boychild" með Boney M spilað í græjunum, þetta er nú svo asnalegt að það hálfa væri nóg og það að þetta hafi verið í Jeddah í Saudi-Arabíu er svo annað, sýnir nú stundum hvernig þessir gaurar eru. Jæja, að öðru, karlinn er nú enn og aftur mættur til Surabaya í góðum gír, stoppið er reyndar ansi stutt í þetta skiptið og ekkert hægt að gera nema að brjóta saman klósettpappírinn og leggja sig. Talandi um klósettpappírinn er ég ánægður með viðtökurnar á þessari stórmerkilegu könnun hér á síðunni, augljóst er af niðurstöðunum að nokkrir menn frá Mið-Austurlöndum hafa lagt leið sína á mína bloggsíðu því úr könnuninni má sjá að nokkrir þátttakendur nota ekki klósettpappír, það þýðir einfaldlega að þeir sprauti alla "gingle bells" frá með vatnssprautu eins og þekkist í Mið-Austurlöndunum. Ekki mín aðferð ;) Ljóst er orðið að heimför verður 19. des, kem kl. 1600 síðdegis þann merkilega dag. Ljóst er að þetta er 2 dögum seinna en áætlað var, en þar sem þjoðin hér í Indónesiu ætlaði að lýsa yfir þjóðarsorg er þeir vissu að ég væri á förum, ákvað ég að koma einu sinni við í viðbót þannig að ekki yrði fórnað neinu í neitt rugl ;) Ég tek einn skrepp til Batham að morgni 16. des, rúlla svo þaðan heim með viðkomu í Jeddah þar sem hoppað verður nánast beint upp í fraktvélina þar sem leið liggur til Brussel, frá Brussel er það svo London og svo frá þeirri eðal borg heim. Smá ferðalag en hvað leggur maður ekki á sig til að komast á klakann! Auðvitað verður maður þá heima lengur eftir áramót sem er bara snilld svona til að skreppa á áðurnefnd skíði hér á blogginu ;) Það hlakkar í manni að komast heim í steikurnar miklu og vonandi hafa allir keypt nógan Tosara (Macintosh) til að japla á með kaffi, það eru engin jól án Tosara, enda kaupir karlinn sinn skerf í fríhöfninni á leiðiinni heim, það er nokkuð ljóst ;) Ég verð að nefna að ég setti upp myndasíðu fyrir ekki svo löngu og er tengill á hana hér til vinstri á þessari síðu sem ber nafnið "Myndir alls staðar af heimskringlunni" svona fyrir þá sem voru í vafa um hvar þetta væri Varðandi athugasemdir frá síðasta bloggi verð ég að geta þess hér að Birkir getur skoðað svar frá mér þar ;) Ég held að ég láti þetta duga í bili, kveðjur til allra heima, og þeirra sem eru i simma í Frankfuhrt og bara allra!!! Hlakka til að sjá ykkur eftir 5 daga eða svo! Later

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 00:08:31 / champinn

Surabaya býður góðan daginn

Vaknaður og hress hér í Surabaya enn á ný, ekkert að því, og dagurinn í gær fyrir bí. Gærdagurinn var samt nokkuð fróðlegur þar sem ég lærði ýmislegt um heim Indónesa. Hvað haldið þið að margir Indónesar fari héðan frá Indó til Mekkah á hverju ári? Til að koma í veg fyrir einhverjar alvarlega vandræðalegar getgátur get ég sagt ykkur það strax að það eru 250. þús Indónesar sem fara á ári hverju til Mekkah, þ.a.l. er maður önnum kafinn þessa dagana að flytja þá í stöflum til Madinah og Jeddah, en þaðan ferðast þeir svo sitt fræga ferðalag til Mekkah (skrifað Makkah í Saudi). Já, svo er annað, þar sem að Hjaltinn er nú búinn að vera ótæmandi í fróðleiksmolum á sínu bloggi og jafnvel orðinn fulll lærður í mandarínskum tungumálum eftir alla veruna í austurlöndum fjær, þá get ég bætt þeim fróðleiksmöla við að Malasía er bara 1/3 af eyjunni Sumötru að stærð, og til að kóróna fróðleiksmolana hér, þá er ég með eitt gott ráð þegar þið fáið spurninguna "hvað er Indónesia stór?", þá getið þið slegið um og svarað um hæl, Indónesia samanstendur af meira en 7000 eyjum og er Sumatra þeirra stærst og Java næst þar á eftir og samanlagt búa meir en 250 mills af fólki þar! Jamm, Indó er ekki öll þar sem hún er séð. Annars er það að frétta að ég flýg til baka héðan til Jeddah í dag, á þá inni 3ja daga frí sem notað verður í æfingar og einhver innkaup, kannski maður skelli sér bara í gulll-soukið (gullmarkaðinn) og sjái hvað er nýtt á boðstólunum, aldrei að vita hvað er hægt að fjárfesta þar ;) Heyrst hefur að Stekkjastaur sé á leiðnni til Jeddah að kíkja á úrvalið fyrir jólin ;) Jólaskapið nálgast óðfluga og maður er að verða ansi hreint spenntur að koma heim og taka þátt í gleðskapnum sem fylgir hátíð ljóss og friðar. Enda að verða tæp 4 ár síðan ég gat gert það síðast, þannig að það er nú kominn tími til aið gera þetta með pompi og prakt! Svo er aldrei að vita ef það er snjór einhvers staðar á skerinu, Akureyri eða annars staðar, að maður skelli sér kannski á skíði einn dag svona til að gera þetta alveg skothelt svona um jólin. Það eru nú komin 16 ár síðan karlinn brenndi niður fjöllin í Kerlingafjöllunum, ekki farið á skíði síðan! Kominn tími á að tékka hvort taktarnir séu ekki enn til staðar ;) Jæja, látum þetta nóg af yfirlýsingum í bili, kveðjur til allra á fróni og annars staðar. Adios

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 20:48:26 / champinn

Nýtt blogg og meiri stemmning

Sælt veri fólkið nær og fjær Jæja, í dag ákvað ég að búa til nýtt blogg þar sem gamla blogg-síðan mín var að gefa sig auk þess sem þeir vildu eitthvað fara að rukka mig fyrir að nota það meir, eins og alvöru manni sæmir nýtir maður sér samkeppnina og færir sig bara yfir á næsta gaur í bransanum, líka ágætt að vera í "synch-i" við hgret sem er einnig hér á blogCentral. Hvað um það, er staddur í Surabaya í Indónesiu, ágætis staður alveg og fínt að vera hér. Hef reyndar ekki tekið út borgina að neinu marki nema farið í eitt "mall" og aðeins rölt um strætin. Borg drauma og ljósa, hin ægilega Madinah, bíður hinu megin við hornið að taka á móti manni annað kvöld, reyndar mætum við ekki þangað fyrr en á fimmtudaginn því flugið er ca. 11 tíma langt héðan þangað, langt segja sumir, stutt segi ég ;) Það hefur verið róleg tíðin upp á síðkastið, kannski helst að segja frá því að bíllinn fór inn í bílskúr í fyrsta skipti um daginn, þ.e. daginn áður en ég fór út síðast. Það var mikið fagnaðarefni því kuldinn hefur mikið að segja svona á veturna, þ.e. alltaf þægilegt að fara í heitan bíl á morgnana svona á veturna, tær snilld bara. Mikið hefur verið tekið á í æfingunum upp á síðkastið og hafa menn hvergi slegið af í þeim málum, ekki veitir af, annrs verður karlinn bara hel-kringlóttur í laginu ef maður heldur sér ekki við! Heimkoma er áætluð 17. des, en ekki er hægt að taka þá dagsetningu of alvarlega því pílagrímaflugið er í fullum gangi og jafnvel þarf maður að vera nokkra daga í víðbót, eina sem hægt er að gera er að halda ótrauður áfram og sjá svo hvað verður í þeim málum. Karlinn fjárfesti í 400 d myndavél um daginn, þannig að það ættu nú kannski að koma skemmtilegar myndir af alls konar stórmerkilegum viðburðum sem champinn tekur þátt í, aldrei að vita ;) Núna sit ég og hlusta á "No pressure over capuccino" sem er snilldar lag með Alanis Morissette, horfi út um gluggann hér á hótelinu og rýni út í myrkrið, dreymi um kaffibolla og hugsa til þess að vera heima hjá elskunni um jólin. Það er ekki erfitt að ímynda sér jólin hér í Surabaya, 2-var hef ég tekið jól og áramót út í Indónesiu áður og það verður ekki gert oftar!!! Ekki að það hafi verið neitt slappt, en það er eitthvað skrýtið við það að vera í 30 stiga hita um jólin í miklum raka, það er bara svo fjarri því að vera íslenskt að það hálfa væri nóg, þ.a.l. verður það ekki endurtekið nú og vonandi er ekki þðrf á því heldur í framtíðinni, sjáum til. Kveðjur til allra, myndir koma hér inn fljótlega. Teramakasih

» 6 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill